Auglýsing

Ísland verður heimsmeistari í fjölda Dunkin’ Donuts-staða

Dunkin’ Donuts stefnir á að opna í heildina 16 staði hér á landi. Stefnan er sett á heimsmet. Miðað við höfðatölu.

 

Eins og Nútíminn greindi frá í gær stendur til að opna 16 Dunkin’ Donuts veitingastaði á Íslandi á næstu fimm árum. Staðirnir opna í samstarfi við 10-11 og búast má við að flestir verði inni í verslunum keðjunnar þó það standi einnig til að opna sérstaði, eftir því sem Nútíminn kemst næst.

Sjá einnig: 16 Dunkin’ Donuts staðir opna á Íslandi

Ísland verður heimsmeistari í fjölda Dunkin’ Donuts staða miðað við höfðatölu ef áætlanirnar standast. Einn staður verður á hverja 20.000 íbúa eftir fimm ár, ef allt gengur að óskum kleinuhringjarisans en í Bandaríkjunum er einn staður á hverja 46.000 íbúa.

Í lok árs 2013 voru 7.677 Dunkin’ Donuts staðir í Bandaríkjunum. Fyrir hrun stóð til að fjölga þessum stöðum í 15.000 fyrir árið 2020 en þá verður einn staður á hverja 21.000 Bandaríkjamenn. Met Íslands mun því standa óhaggað.

Dunkin’ Donuts virðist horfa mikið til norðurlandanna um þessar mundir en til stendur að opna 20-25 staði í Danmörku, annað eins í Finnlandi og 30 staði í Svíþjóð.

Auglýsing

læk

Auglýsing
Auglýsing

Fréttir

Auglýsing