Auglýsing

Þingmenn segja óþolandi að þurfa að ganga undir bandaríska fánann

Bandaríski fáninn sem hangir utan á American Bar fer í taugarnar á þingmönnum og starfsmönnum Alþingis.

 

Starfs­mönn­um Alþing­is og þing­mönn­um hugn­ast það ekki, þegar þeir ganga til vinnu í Aust­ur­stræti og funda, að þurfa að ganga inn und­ir banda­ríska fán­an­um sem hangir utan á American Bar í Austurstræti. Þetta kemur fram í Morgunblaðinu í dag.

Uppfært kl. 11.56: American Bar hefur tekið niður fánana

Morgunblaðið greinir frá því að Alþingi leig­ir stór­an hluta Aust­ur­stræt­is 8-10 und­ir skrif­stofur. Þar er skrif­stofa nefnda­sviðs Alþing­is ásamt skrif­stof­um þing­flokks Sjálf­stæðis­flokks­ins, þingflokks Bjartrar framtíðar og starfs­fólks Alþing­is.

American Bar er á jarðhæð en bar­inn flagg­ar banda­ríska fán­an­um bæði Aust­ur­stræt­is­meg­in og Aust­ur­vall­ar­meg­in.

Vil­hjálm­ur Bjarna­son, alþing­ismaður, segir í sam­tali við Morg­un­blaðið að það sé óþolandi, þegar hann gengur inn í skrif­stofu­hús­næði Alþing­is, að ganga und­ir banda­ríska fán­ann. Ein­ar K. Guðfinns­son, for­seti Alþing­is, er sammála.

Mér finnst þetta al­gjör­lega óþolandi. Ég veit ekki annað en búið sé að ræða við eig­end­ur húss­ins. Ég að minnsta kosti bað um að það yrði gert.

Ein­ar segir í Morgunblaðinu að þetta und­ir­stiki þörf­ina á því að Alþingi væri í sín­um eig­in húsa­kynn­um, þar sem þingið gæti ráðið öllu sem því við kem­ur.

Auglýsing

læk

Auglýsing
Auglýsing

Fréttir

Auglýsing