Myndband af tveimur félögum að flytja poppslagarann Gerðiþaðekki ferðast nú um internetið.
Þúsundir hafa horft á myndband félaganna Hauks Halldórssonar og Guðmundar Stefáns Þorvaldssonar á Facebook þar sem þeir taka smellinn Gerðiþaðekki á kassagítar. Myndbandið er einnig komið á Youtube og hægt er að horfa á það hér fyrir neðan.
Sjá einnig: Tólf frábær tíst um Gerðiþaðekki
Nútíminn fékk Þorstein Baldvinsson til að smíða popplag úr frammistöðu Sveinbjargar í Kastljósi á dögunum. Úr varð poppslagarinn Gerðiþaðekki sem er kominn með tæplega 70.000 áhorf á Youtube.