Auglýsing

„Í rauninni hafa hvítir ekkert heimili. Við höfum engan stað. Engan! Núll!“

Málefni innflytjenda eru ofarlega á baugi um þessar mundir og ummæli Skúla Jakobssonar hafa vakið mikla athygli.

 

Viðtal við Skúla Jakobsson í sjónvarpsþáttunum Brestum á Stöð 2 vakti mikla í byrjun apríl. Skúli sagði þar að „fjölmenningastefna sem er í gangi sé hrein og klár útrýmingarstefna.“

Skúli var í áhugaverðu viðtali í útvarpsþættinum Harmageddon í morgun. Þar sagðist hann engin viðbrögð hafa fengið við þættinum, sem hann sagði fjölmenningarsinnaðan áróðursþátt.

Þá sagði hann innflytjendum dreift út um allt land og að hvítt fólk ætti ekkert heimili. „Í rauninni hafa hvítir ekkert heimili. Við höfum engan stað. Engan! Núll! Fyrir hvítt fólk, sem hvítt fólk,“ sagði hann.

Frosti spurði þá Skúla hversu vel upplýstur hann er. „Þú ert partur af einhverju sem heitir Sköpunarhreyfingin. Sem eru krikjusamtök sem berjast fyrir aðskilnaði hvítra og annarra kynstofna. Er þér alvara?“

„Að sjálfsögðu,“ svaraði Skúli. „Grafalvarlegt mál.“

Viðtal Frosta og Mána við Skúla má heyra hér fyrir neðan.

Auglýsing

læk

Auglýsing
Auglýsing

Fréttir

Auglýsing