Skyr er framleitt víða. Til dæmis í Danmörku og þaðan er skyrið flutt til Bretlands
Danska mjólkurfyrirtækið Arla auglýsir nú skyrframleiðslu sína af fullum krafti í Bretlandi. Auglýsing Arla er á íslensku og ensku og er ætluð breskum markaði en Arla hefur nú hafið sölu á skyri í Bretlandi. Þetta kemur fram á vef RÚV.
Skyrið er framleitt eftir íslenskri uppskrift og hefur verið í sölu í um það bil þrjú ár. Fjölmargir íslenskir leikarar koma fram í auglýsingunni sem segir frá Orra Sigurðssyni, sem er einhvers konar mannlegt sms. Hann hámar í sig skyr milli þess sem hann kemur skilaboðum til bæjarbúa.
Siggi Sigurjóns leikur í auglýsingunni
Og Halldór Gylfason
Og Sveppi leikur vitavörð
Svo mætir Hjálmar Hjálmarsson
Auglýsinguna má sjá hér fyrir neðan.
https://youtu.be/5hLvJ5R9C9A