Nýtt grín frá Tólf núll núll datt á Youtube í gær og kassamerkið #ekkisegjaneinum fylgdi með.
Grínhópurinn 12:00 nýtur talsverðra vinsælda og hefur sent frá sér nýtt lag og myndband. Lagið heitir Ekki segja neinum og er ansi hressandi.
Sjá einnig: Tólf núll núll gefur út smell í skugga illdeilna
Hópurinn er yfirleitt á vegum Verzlunarskóla Íslands en á Youtube kemur fram að lagið sé gefið út á þeirra eigin vegum. Hægt er að hlusta á lagið hér fyrir neðan.