Í janúar verður loksins hægt að rífa í lóðin í Breiðholti en þá opnar World Class í hverfinu.
World Class opnar líkamsræktarstöð við Breiðholtslaug í janúar. Grein hafði verið frá þessu á Fréttanetinu. Dagur B. Eggertsson borgarstjóri og Björn Leifsson, fulltrúi Þreks ehf. sem rekur World Class, skrifuðu í dag undir samning um byggingu og rekstur stöðvarinnar.
Sjá einnig: Of fá bílastæði fyrir World Class í 101
Tillaga um að hefja undirbúning að því að koma upp líkamsræktarstöð við Breiðholtslaug var samþykkt í borgarráði í febrúar árið 2013. Var það meðal annars vegna þess að engin líkamsræktarstöð er i Efra-Breiðholti.
Dagur B. Eggertssson sagðist við undirritunina sérstaklega glaður fyrir hönd Breiðhyltinga.
Það verður gott fyrir hverfið að fá loksins líkamsræktarstöð en hún mun líka koma til með að styrkja Breiðholtslaug enn frekar
Gert er ráð fyrir að framkvæmdir hefjist fljótlega og segist Björn Leifsson, framkvæmdastjóri World Class, stoltur og spenntur.
„Stutt er í opnun þannig að það er eins gott að láta hendur standa fram úr ermum en við ætlum að sjálfsögðu að standa við stóru orðin,” segir hann.
Í tilkynningu kemur fram að Þrek ehf. muni byggja og reka líkamsræktaraðstöðuna, en Reykjavíkurborg byggir glerganginn meðfram íþróttahúsinu. Þrek ehf. greiðir 75 milljónir króna fyrir byggingarréttinn, gatnagerðargjöld og afnot af bílastæðum.