Auglýsing

Rihönnu er drullusama um einkalífið

Rihanna er mesti töffarinn í bransanum um þessar mundir.

 

Rihanna er á forsíðu tímaritsins V og lætur hafa eftir sér allskonar töffaraleg ummæli. Hún er til að mynd spurð hvort hún eigi eitthvað einkalíf, verandi ein frægasta söngkona heims og svarar að bragði: „Eins og mér sé orðið ekki drullusama um það.“

 Sjá einnig: Rihanna sendir frá sér nýtt myndband

Forsíðu V má sjá neðar í fréttinni.

Hún er einnig spurð út í væntanlega plötu sem kemur út á næstunni. Hún er afar ánægð með lögin á plötunni en við höfum þegar fengið að heyra Bitch Better Have My Money, American Oxygen og stórsmellinn FourFiveSeconds, sem hún vann með Kanye West og lítt þekktum bassaleikara að nafni Paul McCartney.

„Andstæðurnar í laginu og textanum urðu til þess að ég varð ástfangin að því,“ segir Rihanna spurð út í FourFiveSeconds.

Þegar maður les bara textann er þetta allt annað lag en það sem maður heyrir. Tónlistin er afslöppuð en innihald textans er hávært og ögrandi. Þegar við fluttum lagið var lykilatriði að tapa ekki árásargirni textans.

Hafið þið spáð í textanum?

Forsíðu V má sjá hér fyrir neðan.

o-V-MAGAZINE-570 (1)

Auglýsing

læk

Auglýsing
Auglýsing

Fréttir

Auglýsing