Auglýsing

Reiðitúlkur Obama slær í gegn

Barack Obama sannaði enn og aftur að þrátt fyrir að það megi deila um ýmislegt í forsetatíð hans þá er hann fyndnasti Bandaríkjaforseti allra tíma. Framsögn skiptir máli, við vitum að hann semur ekki efnið sitt sjálfur.

Obama flutti ræðu á árlegum kvöldverði fréttamanna í Hvíta húsinu í gær og fór á kostum eins og venjulega. Hann endaði á að kalla reiðitúlkinn Luther upp á svið en Keegan-Michael Key úr gríntvíeykinu Key & Peele lék hann.

Luther túlkaði sem sagt hvað Obama var raunverulega að meina á mannamáli.

Myndbandið má sjá hér fyrir neðan. Þetta er öll ræða Obama en myndbandið hefst þegar hann kallar Luther upp á svið.

Auglýsing

læk

Auglýsing
Auglýsing

Fréttir

Auglýsing