Auglýsing

Amy Schumer grínast með fegurðarkröfur strákasveita í grípandi popplagi

Schumer hefur slegið í gegn með sketsaþáttum sínum Inside Amy Schumer og í nýjasta þættinum grínaðist hún með strákasveitir sem syngja um náttúrulega fegurð kvenna — en aðeins þegar konan fellur undir ákveðnar skilgreiningar.

Schumer skellti í grípandi popplag til að koma boðskapnum á framfæri og í því er hún hvött af sykursætri strákasveit til að henda snyrtuvörunum sínum. Þegar hún er búin að því snýst þeim hugur og þeir hvetja hana til að farða sig á ný.

Við viðurkennum að við náum ekki að láta þetta hljóma mjög skemmtilega en þetta er í alvöru mjög fyndið. Horfið á myndbandið hér fyrir neðan.

Auglýsing

læk

Auglýsing
Auglýsing

Fréttir

Auglýsing