Fjölskylda Amy Winehouse gagnrýnir væntanlega kvikmynd um söngkonuna, sem lést árið 2011. Myndin, sem heitir einfaldlega Amy, verður frumsýnd á Cannes kvikmyndahátíðinni í næsta mánuði.
Fjölskyldan hafði gefið samþykki sitt fyrir gerð myndarinnar ásamt því að taka þátt í framleiðslunni. Í vikunni afneituðu þau hins vegar verkefninu.
Framleiðendurnar myndarinnar segjast hafa nálgast verkefnið á hlutlausan hátt og að myndin sé ávöxtur þess sem kom í ljós eftir að hafa tekið viðtöl við tugi manns sem þekktu og/eða störfuðu með Amy Winehouse.
Mitch Winehouse, faðir Amy, er sérstaklega ósáttur við hvernig hann kemur út í myndinni og segir meðal annars í viðtali við The Guardian að kvikmyndagerðarmennirnir hafi viljandi skrumskælt þar sem hann sagði um að dóttir hans þyrfti ekki á meðferð að halda.
Hann fékk að sjá myndina á dögunum og sagði framleiðendunum í kjölfarið að þeir ættu að skammast sín.
Leikstjóri myndarinnar er Asif Kapadia en hann leikstýrði einnig hinni farsælu Senna, sem fjallaði um brasilíska ökuþórinn Ayrton Senna sem lést árið 1994.