Tæplega þriggja ára gömul mynd af Ásmundi Einari Daðasyni, þingmanni Framsóknar, hefur skotið upp kollinum á Facebook. Myndin virðist vera af Instagram-síðu Sigmundar Davíðs, sem inniheldur reyndar aðeins tvær myndir sem voru teknar á þriggja tímabili í desember árið 2012.
Sjá einnig: Súkkulaðikaka með perum í mötuneyti Alþingis
Plötusnúðurinn Margeir Steinar Ingólfsson birtir myndina á Facebook og biður fólk um að útskýra fyrir sér hvað er að gerasta á Alþingi Íslendinga.
Myndin sýnir vígreifan Ásmund Einar með risavaxið xB barmerki, haldandi á einhverju sem virðist vera refafeldur. Í bakgrunni sést kampakátur Gunnar Bragi Sveinsson og uppi á vegg hangir mynd af Steingrími Hermannssyni.
Það var allavega stuð í þingflokki Framsóknar á þessum tíma.