Hrekkjalómurinn Róbert Marshall náði að plata nokkra þingmenn Sjálfstæðisflokksins í mötuneyti Alþingis í vikunni, eins og Nútíminn greindi frá í dag.
Sjá einnig: Borð Sjálfstæðisflokksins tekið frá fyrir Pírata
Róbert setti hann miða á stórt borð í horni mötuneyti Alþingis, sem Sjálfstæðisflokkurinn situr jafnan við í hádeginu, sem á stóð: Frátekið fyrir Pírata (30%). Miðann má nú sjá hér fyrir neðan.
Nokkrir þingmenn skemmtu sér svo við að horfa á hvern sjálfstæðismanninn á fætur öðrum velja sér sæti á litlu borði við hlið stóra borðsins. Á meðal þeirra sem hurfu frá borðinu voru Unnur Brá Konráðsdóttir, Jón Gunnarsson, Guðlaugur Þór Þórðarson og varaþingmaðurinn Geir Jón Þórisson
Og hér er hann í allri sinni dýrð. Miðinn sem plataði þingmenn Sjálfstæðisflokksins: