David Letterman, einn vinsælasti spjallþáttastjórnandi Bandaríkjanna, sest í helgan stein í maí. Síðasti þátturinn verður á dagskrá 20. maí og stjörnurnar í Hollywood mæta nú í þáttinn til að kveðja hann.
Tina Fey var gestur Letterman í gær og fór ansi sérstaka leið til að heiðra gamla manninn.
Hún sagðist aldrei aftur ætla að fara í svona fínan kjól og aðhaldsnærföt fyrir annan spjallþáttastjórnanda. Hún sagðist svo ætla að gefa Letterman kjólinn sem hún var í og vippaði sér úr honum.
Þetta er allavega ein leið til að kveðja hann.
https://www.youtube.com/watch?t=49&v=2tKhr5Ujbd4