Taylor Swift sendi frá sér myndband í dag við lagið Bad Blood. Mikið er lagt í myndbandið sem er stjörnum prýtt og rapparinn Kendrick Lamar rappar með Swift í laginu.
Myndbandið má sjá hér fyrir neðan en skoðum aðeins hvað við erum með í höndunum.
Selena Gomez er grjóthörð í myndbandinu.
Kendrick Lamar rappar í laginu.
Lena Dunham úr þáttunum Girls lítur við.
Fyrirsætan Cara Delevingne á einnig góða innkomu.
Og leikkonan Jessica Alba.
Og síðast en alls ekki síst: Cindy Crawford.
En komum okkur að efninu. Hér er myndbandið: