Paris Hilton er ekki búin að gefa tónlistardrauminn upp á bátinn og sendir frá sér nýtt lag í daG: High Off My Love. Rapparinn Birdman kemur einnig fram í laginu og sjálf dansar Hilton fáklædd í myndbandinu.
Myndbandið má sjá hér fyrir neðan.
Paris Hilton hefur sent frá sér eitt lag á ári frá 2013 en hún gaf út plötuna Paris árið 2006. Platan seldist vel og fór inn á topplista í tíu löndum ásamt því að ná sjötta sæti á bandaríska Billboard-listanum.