Jón Gnarr hefur verið ráðinn ritstjóri innlendrar dagskrár hjá 365. Hann hefur þegar hafið störf. Þetta kemur fram á Vísi.
Jón segir í samtali við Vísi að hann sé spenntur að takast á við þetta áhugaverða og krefjandi starf.
Íslensk dagskrárgerð hefur verið ástríða mín alla tíð. Flest það sem ég hef gert í þeim efnum hef ég gert á miðlum 365; Stöð 2, X-inu og Fréttablaðinu. 365 er að mínu mati einn mest spennandi vinnustaður á Íslandi í dag.
Jón þakkar stjórnendum traustið og hlakkar til að fá að leggja lóð sín á vogarskálarnar „með því að móta vandaða innlenda dagskrárgerð til framtíðar með skemmtilegu samstarfsfólki.”
Sævar Freyr Þráinsson, forstjóri 365, segist ekki geta verið ánægðari með ráðninguna.
„Við vitum að Jón Gnarr mun reynast okkur mikill happafengur,“ segir hann.
„Handbragð Jóns mun sjást í öllum okkar miðlum strax í haust. Ég er sannfærður um að viðskiptavinir okkar og landsmenn allir eiga eftir að njóta þessa í dagskránni okkar. Við hlökkum til að starfa með jafn skapandi og skemmtilegum manni og Jóni Gnarr.“