Auglýsing

Sendi Eygló Harðar sms og sagðist vilja taka við barni á flótta: Eygló hringdi um hæl

Snærós Sindradóttir, blaðamaður á Fréttablaðinu, sendi Eygló Harðardóttur,félags- og húsnæðismálaráðherra, sms í dag þar sem hún sagðist ásamt manni sínum vilja taka við barni sem er á flótta ef því er veitt hæli hér.

„[Við] gerum okkur grein fyrir því að þetta er skuldbinding til margra ára en hvert einasta barn sem kemur hingað og er bjargað skiptir máli. Endilega verið í bandi þegar þið eruð búin að vinna úr þessu,“ sagði Snærós í skilaboðunum.

Sjá einnig: Örskýring: Milljónir á flótta vegna stríðsátaka

Eygló sagðist í þætt­in­um Sprengisandi á Bylgj­unni í morg­un vilja taka á móti fleiri flótta­mönn­um. Hún biðlaði til al­menn­ings um að leggja sitt af mörg­um við að aðstoða flótta­fólk sem þegar er komið til lands­ins að læra á lífið hér á landi.

Eygló hafði samband við Snærós um hæl og fullvissaði hana um að það væri verið að gera allt til að finna út úr því hvernig á að koma flóttamönnum hingað til lands.

„Nafnið okkar Freys [Rögnvaldssonar] er komið inn í ráðuneyti sem mögulegir fósturforeldrar. Það er skoðað að koma fjölskyldum þeirra flóttamanna sem eru hér fyrir til landsins. Mér sýnist öll ljós vera kveikt. Takk fyrir,“ sagði Snærós á Facebook-síðu sinni.

Auglýsing

læk

Auglýsing
Auglýsing

Fréttir

Auglýsing