Myndbandaverðlaun MTV voru afhent við hátíðlega athöfn í gær. Miley Cyrus var kynnir kvöldsins og Taylor Swift sópaði að sér verðlaunum.
Myndband ársins var Bad Blood með Taylor Swift og Kendrick Lamar. Mark Ronson og Bruno Mars fengu verðlaun fyrir Uptown Funk í karlaflokki og Taylor Swift fyrri Blank Space í kvennaflokki. Það var einnig poppmyndband ársins.
Rokkmyndband ársins var við lagið Uma Thurman með Fall Out Boy. Besta hipp hopp myndbandið var Anaconda með Nicki Minaj.
Miley Cyrus lék á als oddi á hátíðinni og frelsaði til dæmis geirvörtuna.
Nicki Minaj stal hins vegar fyrirsögnunum þegar hún tók við verðlaunum sínum og hrópaði á Miley. Minaj var ekki ánægð með að Miley gagnrýndi hana á dögunum fyrir að láta opinbert rifrildi hennar og Taylor Swift snúast um kynþætti.
https://vine.co/v/eIDitaYELgl
Ýmislegt annað gerðist á hátíðinni. Taylor Swift skaut á Kanye
https://vine.co/v/eIpqBT1Zeze
Justin Bieber fór að gráta
Amber Rose og Blac Chyna gagnrýndu kvenfyrirlitningu með klæðnaði sínum
Og Kim Kardashian og fyrirsætan Chrissy Teigen tóku selfí.
https://vine.co/v/eIpz6AWJtUZ