Tónlistarkonan Taylor Swift fékk ansi magnaða gjöf frá leynilegum aðdáanda á dögunum. Aðdáandinn prjónaði peysu á Swift og afhenti móður hennar á tónleikum á dögunum.
Sjá einnig: Taylor Swift fær einkaleyfi á „þessum sjúka takti“
Swift birti mynd af sér í peysunni á Instagram strax í kjölfarið. Undir myndinni skrifar hún að einhver hafi prjónað þessa peysu eftir Polaroid-mynd sem hún birti á internetinu (og má sjá hér fyrir neðan).
„[Þessi peysa] er á skömmum tíma orðin mér mjög kær. Þakka þér fyrir, dularfulli prjónari,“ sagði Swift.
https://instagram.com/p/7URiQlDvIc/?taken-by=taylorswift
Hér má svo sjá myndina sem dularfulli aðdáandin prjónaði peysuna eftir. Viðkomandi prjónaði meira að segja textann undir myndinni.