Kim Kardashian og systur hennar, Khloe, Kyle og Kendall opnuðu nýjar vefsíður í vikunni og sendu frá sér öpp.
Ýmislegt er í boði í öppunum, svo sem sérstök námskeið í förðun, beinar útsendingar, myndir sem sýna hvað gerist bakvið tjöldin og ýmislegt annað. Öppin eru ekki ókeypis og kosta 2,99 dali á mánuði, eða um 380 krónur.
Sjá einnig: Kardashian-systurnar senda frá sér öpp og rukka aðdáendur sína um mánaðargjald
Á vefsíðunum er hægt að skrá sig sem áskrifandi. Hugbúnaðarverkfræðingurinn hefur fundið öryggisgalla í síðunum sem gaf honum aðgang að nöfnum og póstföngum hundruð þúsunda áskrifenda.
Það sem kemur í ljós þegar gögnin eru skoðuð er að Kylie Jenner, sú yngsta af systrunum, er langvinsælust. Eins og myndin hér fyrir neðan sýnir er hún með langflestu áskrifendurna og skilur systur sínar eftir í rykinu.