Rokkstjarnan Steven Tyler, söngvari Aerosmith, steig óvænt á svið með Taylor Swift á tónleikum hennar í Nashville á föstudag.
Tyler og Swift tóku saman lagið Don’t Want to Miss a Thing sem Aerosmith sló í gegn með árið 1998. Þau negldu að sjálfsögðu flutninginn og áhorfendur gjörsamlega ærðust. Myndband af flutningnum má sjá hér fyrir neðan.
https://youtu.be/mUsLUGRgPF0
Lagið var í kvikmyndinni Armageddon en dóttir Tyler, leikkonan Liv Tyler, fór með eitt aðalhlutverkanna í myndinni.
Swift birti svo þessa mynd á Instagram í kjölfarið.
https://instagram.com/p/8FWj8ijvA1/?taken-by=taylorswift
Sjá einnig: Rihanna vill ekki stíga á svið með Taylor Swift: „Hún er fyrirmynd, ekki ég“