Klámvefurinn Pornhub hefur birt úttekt um muninn á hvernig notendur útbreiddustu síma heims nota vefinn. Samkvæmt úttektinni koma 60% heimsókna á vefinn í gegnum síma og þar af nota flestir iPhone og Android-síma á borð við Samsung og LG.
Þau sem nota Android-síma eyða að jafnaði lengri tíma inni á síðunni en þau sem eru með iPhone. Android-notendur eru að jafnaði um 10 mínútur að skoða klám á Pornhub og fletta í gegnum 11 síður á meðan iPhone-notendur skoða síðuna í rúmlega átta mínútur og fletta í gegnum tíu síður.
Þegar flokkarnir eru skoðaðir kemur í ljós að flokkurinn „milf“ er sá vinsælasti hjá iPhone notendum á meðan „BBW“ er sá vinsælasti hjá notendum Android. Fyrrnefndi flokkurinn er frægt hugtak úr kvikmyndinni American Pie og nær utan um mæður á meðan sá síðarnefndi nær utan um konur í þyngri kantinum.
Næstvinsælasti flokkurinn hjá Android-notendum er „shemale“ og í þriðja sæti er „gay – black“. Hjá iPhone er „POV“ í öðru sæti, sem nær utan um klám frá sjónarhorni myndavélarinnar og í þriðja sæti er „Gay daddy“.
Þegar leitarorðin eru skoðuð kemur í ljós að leitarorðið „lesbian“ er í efsta sæti bæði hjá notendum Android og iPhone. „Cartoon“ er í öðru sæti hjá Android á meðan „step mom“ er í öðru sæti hjá iPhone.
Loks kemur í ljós að um 75% sem nota vefinn eru karlmenn en fjórðungur konur.