Grínistinn Amy Schumer gerði grín að Kardashian-fjölskyldunni í uppistandi sínu í skemmtiþættinum Saturday Night Live á laugardagskvöld. Kardashian-fjölskyldan var reyndar lítill hluti af þessu stórskemmtilega uppistandi en ein af systrunum ákvað að svara fyrir sig. Uppistandið má sjá hér fyrir ofan.
Schumer sagðist sakna Khloe Kardashian þar sem hún var „ein af okkur“ þegar hún var aðeins þyngri. Khloe hefur verið í miklu og opinberu líkamsræktarátaki undanfarið og er búinn að skafa af sér tæp 16 kíló, eða „eina Kendall“ eins og Schumer orðaði það.
Khloe notaði Twitter til að svara fyrir sig og þó hún hafi ekki nefnt Amy Schumer á nafn þykir augljóst að hún var að svara skotum grínistans. „Óþarfi að rífa aðra niður til að láta þér líða betur,“ sagði Khloe og sagðist vera á heilbrigðri vegferð.
No need 2 tear down others just 2 make urself feel bigger. It actually makes u quite small. I'm on a healthy journey. I don't care 4the hate
— Khloé (@khloekardashian) October 11, 2015
Hún endaði þetta svo á hvatningu. Allir að brosa.
Let's uplift one another!!! Happy Sunday! Stay smiling!!! ??????????
— Khloé (@khloekardashian) October 11, 2015