Breski ljósmyndarinn Neil Thomas Douglas var á leiðinni með Ryanair til Galway á Írlandi á fimmtudagskvöld að mynda brúðkaup. Hann rak upp stór augu þegar hann kom um borð í flugvélina þar sem tvífari hans sat við hliðina á honum. „Ég trúði ekki eigin augum,“ sagði Douglas í samtali við HuffPost.
Internetið var svo ekki lengi að taka við sér þegar Lee Beattie, vinkona eiginkonu Douglas, birti mynd af tvíförunum á Twitter. Myndin fór á flug og það skal tekið fram að mennirnir höfðu aldrei áður hist og eru ekki skyldir.
Guy on right is the husband of my friend @elrottencrotch. Guy on left is a STRANGER he met on a flight last night! pic.twitter.com/kwBFOOEoMc
— Lee Beattie (@leebeattie) October 30, 2015
„Þeir hlógu saman, ásamt öllum öðrum í kringum þá, og tóku mynd,“ sagði Beattie í samtali við HuffPost.
Þetta varð svo enn þá skrýtnara eftir flugið þar sem þeir fóru á sama hótel og hittust svo fyrir tilviljun á bar um kvöldið.
„Ég fór og fékk mér bjór á fínum bar í Galway sem heitir The Quays og hitti hann aftur,“ sagði Douglas. „Við fengum okkur nokkra bjóra og hlustuðum á hljómsveitina.“