Auglýsing

Stórkostleg viðbrögð smábarns við ljónsöskri afa síns slær í gegn á Youtube

Hinn 18 mánaða gamli Jett er orðinn alþjóðleg stórstjarna eftir að myndband sem sýnir stórkostleg viðbrögð hans við stríðni afa síns var birt á Youtube. Sjáðu myndbandið hér fyrir ofan. Þú horfir aftur og aftur.

Jett litli var að leika sér við afa sinn þegar sá gamli ákvað að stríða honum örlítið. Harli White, frænka Jett, kallar á hann og þegar hann kemur hlaupandi rekur afi hans upp mikið ljónsöskur.

Viðbrögðin eru í einu orð sagt stórkostleg. Jett snýr við, lætur ekki bjóða sér svona vitleysu, en frænka hans segir í samtali við Huffington Post að hann hafi á haft gaman að þessu og hlegið að afa sínum.

White deildi svo myndbandinu með vinum og fjölskyldu ásamt því að senda það í þáttinn America’s Funniest Home Videos, þar sem það var birt. Það fór svo á flug þegar það birtist á Youtube og nú hefur verið horft á það oftar en milljón sinnum.

Auglýsing

læk

Auglýsing
Auglýsing

Fréttir

Auglýsing