Eftir að tónlistarkonan Adele sendi frá sér lagið Hello hafa margir spéfuglar tekið myndbandið við lagið og sett Adele í allskonar aðstæður. Hún var til dæmis látin hringja í Lionel Richie, sem á frægt lag með sama nafni.
Sjá einnig: David Attenborough lýsir bardaga Gunnars Nelson
Það þurfti hins vegar David Attenborough til að toppa þetta allt. Karlinn var fenginn til að lýsa því sem fyrir augu ber á sinn einstaka hátt þegar myndbandið hefst. Útkoman er sprenghlægileg. Sjáðu myndbandið hér fyrir ofan.