Sala á Balmain-línunni hófst í verslunum H&M í dag og það varð allt hreinlega vitlaust. Netverslun H&M hrundi oft í dag og viðskiptavinir ruddust inn í verslanir þegar þær opnuðu í morgun.
Í myndbandinu hér fyrir ofan sést hvernig fólk brást við þegar ein af verslunum H&M opnaði í París. Fólk var hreinlega heppið að sleppa lifandi frá þessu. Eða þannig.