Pirelli-dagatal næsta árs var kynnt í dag. Dagatalið er þekkt fyrir að birta nektarmyndir af mörgum af frægustu ofurfyrirsætum heims en í ár var ákveðið að skipta þeim út fyrir konur sem eru þekktar fyrir allt annað en fyrirsætustörf.
Á meðal þeirra sem sitja fyrir eru grínistinn Amy Schumer, tenniskonan Serena Williams, leikstjórinn Ava Duvernay og söngkonan og aktivistinn Patti Smith. Myndirnar hafa vakið mikla athygli en nokkrar af þeim má sjá hér fyrir neðan. Ljósmyndarinn Annie Leibovitz tók myndirnar.