Kylie Jenner prýðir forsíðu tímaritsins Interview sem kom út í dag. Á vef Huffington Post er hún sögð vera í gervi kynlífsdúkku en líkja á sama tíma eftir Jackie O. Jenner er klædd í latex í myndatökunni en nokkrar myndir úr tímaritinu má sjá hér fyrir neðan.
Jenner er sögð vera að feta í fótspor systra sinna í Kardashian-fjölskyldunni en þær hafa verið óhræddar við að fækka fötum í ýmsum tímaritum. Þessar myndir eru sagðar vera tilraun hennar til að brjóta internetið en Kim Kardashian gerði það eftirminnilega í fyrra með ögrandi myndaþætti í tímaritinu Paper.
Jenner hefur einnig verið gagnrýnd á samfélagsmiðlum fyrir að sitja fyrir í hjólastól og líta þar með á hjálpartækið sem tískufylgihlut.
Myndir úr tímaritinu má sjá hér fyrir neðan.
Kylie for Interview Magazine photographed by Steven Klein #kyliejenner #interviewmagazine
A photo posted by Kylie Jenner Updates (@kyliejupdate) on
Kylie for Interview Magazine photographed by Steven Klein #kyliejenner #interviewmagazine
A photo posted by Kylie Jenner Updates (@kyliejupdate) on