Justin Bieber og Kourtney Kardashian eru sögð vera að hittast á laun. Tímaritið US Weekly greinir frá þessu og hefur eftir heimildarmönnum sínum að Biber hafi montað sig af sambandinu við vini sína.
Kourtney er 36 ára gömul, þriggja barna móðir, en Bieber 21 árs. Þau hafa verið mynduð yfirgefa næturklúbba saman í Los Angeles og Us Weekly greinir frá ferðum þeirra um helgina þar sem þau eiga að hafa djammað saman og farið karókí.
Beiber birti svo þessa mynd í gær þar sem hann stendur ásamt dularfullri konu og snýr baki í myndavélina. Textinn við myndina er „Lord knows“ og fjölmiðlar benda á að Lord sé viðurnefni Scott Disick, barnsföður og fyrrverandi eiginmanns Kourtney Kardashian.
Þvílík sápuópera.
Vefmiðillinn The Daily Beast finnur hins vegar óþef af málinu og telur að þær séu aðeins til þess fallnar að halda Kardashian-fjölskyldunni í fréttum. Bent er á að móðir Kourtney, hin lævísa Kris Jenner, sé að hitta Corey Gamble, vin Justins Bieber og fyrrverandi samstarfsmann.
Þar á bæ telja menn að Gamble og Bieber, sem er mikill vinur Kardashian-fjölskyldunnar, séu að hjálpa til við halda fjölmiðlasirkúsnum gangandi og ekkert sé til í sögusögnum um ástarsamband við Kourtney.
Við spyrjum að leikslokum.