Auglýsing

Kim Kardashian borðaði fylgjuna: „Af hverju ekki? Ég hef engu að tapa!“

Kim Kardashian sagði frá því í bloggfærslu í dag að hún hafi borðað fylgjuna eftir að hún og Kanye West eignuðust annað barn sitt á dögunum, soninn Saint West.

Í færslunni segist hún hafa heyrt margar sögur af mömmum sem borðuðu ekki fylgjuna og þjáðust af fæðingarþunglyndi. „En svo eignuðust þær annað barn og innbyrtu fylgjuna í pilluformi og urðu ekki þunglyndar,“ segir hún.

Þannig að ég hugsaði bara: „Af hverju ekki?“ Ég hef engu að tapa!

Kim segist ekki vera ginkeypt fyrir heildrænum meðferðum en segist þó hafa ákveðið að innbyrða fylgjuna í pilluformi. Þar með fetaði hún í fótspor Kourtney, systur sinnar, sem innbyrti fylgjuna eftir að hún eignaðist þriðja barn sitt.

Samkvæmt umfjöllun Huffington Post bendir fátt til þess að fylgjan komi í veg fyrir fæðingarþunglyndi.

Auglýsing

læk

Auglýsing
Auglýsing

Fréttir

Auglýsing