Auglýsing

Átta ára stelpa úr Skagafirði slær í gegn á Facebook, syngur eins og engill

Myndskeið af hinni átta ára gömlu Ragnhildi Sigurlaugu Guttormsdóttur, þar sem hún syngur á Jólatónleikum Gospelkórs Akureyrar, hefur farið eins og eldur í sinu á Facebook. Þetta kemur fram á vef Feykis.

Ragnhildur Sigurlaug er frá Grænumýri í Blönduhlíð og eru foreldrar hennar Guttormur Hrafn Stefánsson og Kristín Halla Bergsdóttir. Búið er að horfa á myndbandið hátt í 60 þúsund sinnum.

Horfðu á myndbandið hér fyrir neðan og jólaskapið getur ekki verið langt undan.

Á engin orð til að lýsa gærkvöldinu….. yndislegt <3 Mig langar að þakka Gospelkór Akureyrar og honum Heimi , Heimir Ingimarsson , fyrir að taka ofsalega vel á móti henni Ragnhildi Sigurlaugu okkar og bjóða henni að upplifa þessa yndislegu stund. Og þakka ykkur líka ofsalega vel fyrir allt Marína Ósk og Hjalti.Frábærir tónleikar í alla staði, frábær og glaður kór, flottir einsöngvarar, flott hljómsveit og gæsahúð alveg í gegn <3 Takk fyrir okkur og gleðileg jól <3

Posted by Kristin Halla on Monday, December 14, 2015

Auglýsing

læk

Auglýsing
Auglýsing

Fréttir

Auglýsing