Reykjavíkurdætur hafa verið talsvert í fréttum undanfarna daga. Hljómsveitin átti að koma fram á tónleikunum Síðasti Sjens í Iðnó í gær. Þær voru hins vegar fastar á Akureyri þar sem þær komu fram ásamt Amabadama í vikunni.
Fréttirnar fóru augljóslega ekki framhjá Einari Má Þórólfssyni sem vildi að allir vissu að hann væri ekki á leiðinni á tónleika með hljómsveitinni
Myndi frekar láta grafa mig lifandi en að fara á tónleika með reykjavíkurdætrum
— Einar Már Þórólfsson (@Einimar) December 30, 2015
Reykjavíkurdætur svöruðu nánast af sjómannasið, birtu tístið hans og já, létu hann heyra það
Erum á leiðinni heim til þín til að halda einkatónleika. Byrjaðu að grafa BITCH https://t.co/ST6qjvJJiI
— Daughters of Reykjavík (@RVKDTR) December 30, 2015
Og Einar Már svaraði fyrir sig, ólíkt því sem við töldum áður
@RVKdaetur látið mig vita þegar þið nálgist. Vil vera kominn langt niður áður en þið byrjið
— Einar Már Þórólfsson (@Einimar) December 30, 2015