Unnið er að því að útbúa átta hótelsvítur á 20. hæð Höfðatorgs við Katrínartún í Reykjavík. Um fimm stjörnu svítur er að ræða og ljóst er að útsýnið verður ekki af verri endanum. Þetta kemur fram í viðskiptablaði Morgunblaðsins í dag.
Jóhannes Stefánsson, sem flestir þekkja undir nafninu Jói í Múlakaffi, er á bakvið svíturnar á samt fjölskyldu sínu og að eigin sögn góðu fólki. Hann segir stuttlega frá verkefninu í Morgunblaðinu í dag.
„Þá erum við fjölskyldan einnig viðloðandi mjög skemmtilegt verkefni í samstarfi með góðu fólki,“ segi hann.
Það er verið að búa til átta hótelsvítur á 20. hæðinni í Höfðatorginu við Katrínartún. Þetta eru fimm stjörnu svítur og verður svakalega flott. Við ætlum að opna fyrir fyrstu gestina í byrjun júní.
Gert er ráð fyrir gistiaðstöðu fyrir 16 gesti á hæðinni. 20. hæðin var auð en til gamans má geta að svíturnar verða í raun á 19. hæð hússins þar sem engin 13. hæð er í húsinu.