Hlustendur Útvarps Sögu eru vægast sagt mjög jákvæðir fyrir því að fá samkynhneigt par á Bessastaði, ef marka má könnun á vefsíðu útvarpsstöðvarinnar. Þúsundir hafa tekið þátt í könnuninni sem var sett af stað í dag.
Könnunin var sett af stað í kjölfar fréttar Vísis í morgun þar sem greint var frá niðurstöðum könnunar Gallup um afstöðu fólks til forsetaframboðs dr. Baldurs Þórhallssonar.
Spurt var: „Ert þú jákvæð(ur) eða neikvæð(ur) gagnvart því að dr. Baldur Þórhallsson, prófessor í stjórnmálafræði verði næsti forseti Íslands og setjist ásamt maka sínum Felix Bergssyni á Bessastaði?“ 51,4 prósent lýsti sig jákvæðan gagnvart hugmyndinni.
Baldur lýsti í kjölfarið yfir á Facebook-síðu sinni að hann væri ekki á leiðinni í framboð. „Við endurtökum þakkir okkar fyrir hlý orð og hvatningu og hvetjum kraftmikla einstaklinga til að stíga fram og bjóða sig fram til embættisins,“ sagði hann.
Könnun Útvarps Sögu hefur verið í gangi í allan dag og atkvæðin eru á sjötta þúsund. Afgerandi meirihluti hlustenda, um 86 prósent, er hlynntur hugmyndinni um samkynhneigt par á Bessastaði á meðan aðeins tæplega níu prósent er á móti.
Fimm prósent hlustenda Útvarps Sögu er á móti hugmyndinni, þegar þetta er skrifað.