Írski tónlistarmaðurinn Ed Sheeran er staddur hér á landi. Hann á afmæli í dag og fagnaði því með steikarsamloku á Gamla fjósinu að Hvassafelli undir Eyjafjöllum í hádeginu. Þetta kemur fram á Vísi.
Vísir hefur eftir starfsmanni á Gamla fjósinu að hann hafi fengið afmælisköku gefins á staðnum en hann varð 25 ára í dag. Hann getur fagnað ýmsu öðru en vann tvö Grammy-verðlaun á sunnudaginn; fyrir lag ársins, Thinking Out Loud og poppframmistöðu ársins fyrir sama lag.
Aðdáendur sem vilja skoða myndir frá ferðalagi hans geta ekki séð þær á Instagram. Hann er hættur að nota samfélagsmiðla í bili, eins og fram kom í skilaboðum á Instagram í desember á síðasta ári.