Auglýsing

Danskt tryggingafélag endurgreiðir viðskiptavinum sínum milljarða

Danska tryggingafélagið Tryg hyggst endurgreiða milljón viðskiptavinum sínum 750 milljónir danskra króna vegna góðrar afkomu á síðasta ári. Það eru um 14 milljarða íslenskra króna.

Í frétt TV2 um málið kemur fram að upphæðin samsvari 8 prósent af iðgjöldum síðasta árs. TryghedsGruppen, sem rekur Tryg, hagnaðist um 1,9 milljarða danskra króna, um 36 milljarða íslenskra króna á síðasta ári.

Ásamt því að endurgreiða viðskiptavinum sínum 750 milljónir danskra króna hyggst félagið gefa 550 milljónir danskra króna, um 10 milljarða íslenskra króna, til samtaka sem ekki eru rekin í hagnaðarskyni.

Á Íslandi hafa þrjú tryggingafélög kynnt fyrirætlanir um samtals 8,5 milljarða króna arðgreiðslur til eigenda sinna á næstu dögum. FÍB, Félag íslenskra bifreiðaeigenda, hefur sent Bjarna Benediktssyni fjármálaráðherra áskorun um að grípa tafarlaust til aðgerða til að stöðva arðgreiðslurnar.

Í tilkynningu frá FÍB segir að arðgreiðslurnar sem tryggingafélögin ætli að borga út „komi úr bótasjóðum sem félögin hafa safnað með uppsprengdum iðgjöldum af ofáætluðum tjónum“.

Auglýsing

læk

Auglýsing
Auglýsing

Fréttir

Auglýsing