Félagarnir Jeremy Clarkson, Richard Hammond og James May byrja með bílaþátt á streymisþjónustunni Amazon Prime í haust. Þeir stýrðu áður þáttunum Top Gear á BBC með stórkostlegum árangri þangað til samstarfinu lauk á síðasta ári.
Clarkson, Hammond og May reyna nú að finna nafn á nýja þáttinn en það er meira en að segja það. Hér fyrir neðan má sjá myndband sem sýnir þá reyna að finna nafnið.