Kim Kardashian, Kanye West, Kourtney og fjölskylduvinurinn Johnathan Cheban lentu í Keflavík í morgun.
Kim Kardashian og Kanye West eru á meðal þekktustu hjóna heims og komust því ekki óséð í gegnum Leifsstöð. Fjölmargir Twitter-notendur sáu stjörnurnr þar sem þær læddust í gegnum Leifsstöð í morgun.
Hitti Kim Kardashian í morgun fleira var það ekki
— Inga Sigurðardóttir (@ingasigudar) April 17, 2016
VAR AÐ HITTA KIM, KOURTNEY OG KANYE WEST ????
— Agatha Mist (@AgathaMist) April 17, 2016
Næ ekki að halda einbeitingu restina af deginum eftir að hafa hitt Kanye
— Einar Kjartansson (@ekjartans) April 17, 2016
Fólk var að pissa í sig af spennu. Nema reyndar ekki þessu náungi.
Ég virtist vera sá eini í FLE sem pissaði ekki á sig af spennu þegar kardashian fjölskyldan labbaði framhjá. Næst skal ég standa mig betur.
— Brynjar (@oskarsson) April 17, 2016
Kourtney birti svo þessa mynd á Snapchat sem sýnir fararskjóta fjölskyldunnar. Með á myndinni er fyrrnefndur Jonathan.
Vitað var að Kim og Kanye væru á leiðinni til landsins. Í mars greindi Fréttablaðið frá því að þau muni dvelja á 101 hótel og að ferðinni hafi þegar verið frestað einu sinni vegna veðurs.
Heimildir Nútímans herma að það standi til Kanye West taki upp tónlistarmyndband hér á landi og samkvæmt Fréttablaðinu verður það ekki tekið upp í Reykjavík heldur á landsbyggðinni.
Ekki er vitað hvaða lag verður fyrir valinu en búast má við að það sé að finna á nýjustu plötu Kanye West, The Life of Pablo.
Kanye og Kim giftu sig árið 2014 og eiga tvö börn saman: Dótturina North West sem fæddist árið 2013 og soninn Saint West sem fæddist í desember á síðasta ári.