Tónlistarmaðurinn Prince lést í vikunni aðeins 57 ára gamall. Prince var afar sérvitur og margar stórkostlegar sögur hafa verið sagðar um óhefðbundnu leiðirnar sem hann fór í lífi sínu.
Sjá einnig: Prince tók of stóran skammt af lyfjum sex dögum áður en hann lést
Leikstjórinn Kevin Smith sagði þessa mögnuðu sögu hér fyrir neðan fyrir nokkrum árum og við megum til með að deila henni með ykkur. Sagan hefst á því að Smith óskar eftir því að fá að nota lag Prince í kvikmynd. Hann bjóst hins vegar ekki við því að vera beðinn um að taka upp heimildarmynd um Prince.
Sagan verður svo bara steiktari og steiktari.
https://youtu.be/8LhcParuzpc