Tveir rússneskir ofurhugar, eða fábjánar, hafa sett myndband á Youtube sem sýnir þá hanga og leika allskonar listir í byggingakrana yfir Moskvu.
Kraninn er í sirka 300 metra hæð og náungarnir tveir eru svo óhræddir að þeir gera meira að segja upphífingar ásamt því að hanga á annarri hendi.
Sjáðu myndbandið hér fyrir neðan.