Vinkonurnar Hildur Kristín og Viktoría eru níu og tíu ára. Þær eru miklir töffarar og æfa sig á hjólabretti í aðstöðu Hjólabrettafélags Hafnarfjarðar. Fréttatíminn fjallaði um þær á dögunum og við urðum að fá að kíkja með þeim á æfingu.
Kristín Péturs, útsendari Nútímans, kíkti á æfingu með þeim og spjallaði við þær. Horfðu á myndbandið hér fyrir ofan. Hún komst að því að þær eru með stóra drauma og stefna á atvinnumennsku.
Hún spurði líka hvað stelpur sem vilja læra á hjólabretti geta gert. „Lært á hjólabretti,“ var svarið.
-Hvernig gær þær það?
-Hvað heldurðu að ég viti það?