Bílaleigan KúKú Campers hefur farið óhefðbundnar leiðir í markaðssetningu og hyggst halda því áfram eins og myndbandið hér fyrir sýnir. Ansi hressandi!
Myndbandið var frumsýnt í Bíó paradís fyrir helgi og það kæmi ekki á óvart ef það myndi vekja talsverða athygli. Í myndbandinu, sem er bráðskemmtilegt, sést eigandinn Steinarr Lár meðal annars stýra bíl í sandfjöru af þakinu (!).
Myndbandið var unnið og framleitt af kvikmyndagerðarmanninum Árna Sveinssyni sem er þekktastur fyrir myndir sínar Óla Prik um Ólaf Stefánsson og Með Hangandi hendi sem fjallaði um Ragga Bjarnason.
Horfðu á myndbandið hér fyrir neðan.
https://youtu.be/db5oruWKRlc