Auglýsing

Ingvi Hrafn birtir upptöku af eigin heilablóðfalli: „Ætlum að sýna ykkur hvað kom fyrir kallinn“

Sjónvarpsmaðurinn Ingvi Hrafn Jónsson fékk heilblóðfall þegar hann var að byrja að taka upp þáttinn Hrafnaþing á ÍNN í byrjun júní. Ingvi Hrafn birti í gær upptöku af tilraunum sínum til að hefja þáttinn sem má finna í spilaranum hér fyrir ofan.

Heilablóðfallið kom skyndilega á og hvarf á þrjátíu mínútum en Ingvi Hrafn var fluttur á sjúkrahús og útskrifaður þaðan laugardaginn 4. júní síðastliðinn.

Ingvi Hrafn fékk í gær dr. Elías Ólafsson, prófessor og yfirlækni taugalækningadeildar LSH, til sín í þáttinn sem útskýrði fyrir honum hvað átti sér stað. Smelltu hér til að horfa á allan Hrafnaþingsþáttinn frá því í gær.

Þegar heilablæðingin átti sér stað gerði Ingvi Hrafn nokkrar tilraunir til að hefja þáttinn án árangurs. Hann sagðist í samtali við DV á dögunum ætla að afhenda læknadeild Háskólans upptökuna. Horfðu á upptökuna í spilaranum hér fyrir ofan.

Auglýsing

læk

Auglýsing
Auglýsing

Fréttir

Auglýsing