Auglýsing

Páll Óskar býður Gumma Ben raddþjálfun: „Þjóðin má ekki missa þessa rödd“

Poppkóngurinn Páll Óskar Hjálmtýsson hefur boðist til að taka Gumma Ben í raddþjálfun. Þetta kemur fram á Facebook-síðu Páls og hann segist ekki vera að grínast.

„Ég elska Gumma Ben. Fullkomlega heiðarlegur og filterslaus í hlutdrægni sinni, og ástríðufullt tilfinninga-spaghetti,“ segir Páll Óskar en lýsing Gumma á leik Íslands og Austurríkis á EM í fótbolta í gær hefur vakið heimsathygli.

Ég býð mig hér með fram til að taka Gumma Ben í raddþjálfun — ekki söngþjálfun heldur raddþjálfun og kenna honum nokkrar upphitunar æfingar, því þjóðin má ekki missa þessa rödd.

Páll Óskar segir að það séu til fínar raddæfingar sem hörðustu þungarokkarar nota til að öskra í áraraðir. „Vona að Gummi Ben fái þessi skilaboð, því ég er ekki að grínast,“ segir hann.

Boltinn er hjá þér, Gummi.

Auglýsing

læk

Auglýsing
Auglýsing

Fréttir

Auglýsing