Sjöttu þáttaröðinni af Game of Thrones lauk í júní. Tökur á sjöundu þáttaröð fara fram á Íslandi í janúar og munu innihalda sex stóra karaktera úr Game of Thrones, samkvæmt heimildum Nútímans.
Nútíminn tók saman nokkur skjáskot sem sýna Íslandi bregða fyrir í sjöttu þáttaröð. Á skrifstofu Nútímans er nefnilega eldheitur aðdáandi sem vakti á nóttunni til að horfa á þættina á sama tíma og þeir fóru í loftið í Bandaríkjunum.
Hann kom sér í samband við Christopher Newman, framleiðanda þáttanna, og tökumanninn Ella Cassata, sem á heiðurinn á þessum skotum.
„Þetta var skotið rétt hjá IKEA en við borðuðum hádegismat þar,“ segir Newman.
Umhverfið hér fyrir ofan var einnig notað í Battle of the Bastards.
Hér höfum við Skessuhorn og jú, Winterfell-kastalann
Skemmtileg staðreynd: Dróninn sem var notaður til að taka upp þetta skot hrapaði skömmu eftir að þetta var tekið upp.