Á einhverjum tímapunkti byrjuðu vinabeiðnir að hrúgast inn hjá flestum frá fólki í útlöndum. Allt í góðu. En þetta fólk virðist ekki vera til. Það er eitthvað svindl í gangi.
Flestir kannast við þetta hérna
Oft berast margar vinabeiðnir á viku. Og sumir virðast láta glepjast á meðan aðrir hunsa beiðnirnar. En hvað er til bragðs að taka?
Það er hægt að stoppa þetta. Smelltu á litla lásinn í hægra horninu á Facebook
Smelltu á „Who can contact me?“
Þar geturðu stillt hverjir geta sent þér vinabeiðnir. Flestir eru eflaust með það stillt svona
En það er hægt að stilla það þannig að aðeins vinir vina geta sent þér vinabeiðnir
Og þar með er vandamálið úr sögunni!