Það sem við vitum núna
- Að minnsta kosti 190 létust í aðgerðunum í gær.
- Valdarán hersins mistóks. Erdoğan, forseti Tyrklands, sneri aftur til Istanbúl í morgun og sagði að valdaránstilraunin hafi verið landráð, framkvæmt af minnihluta hersins.
Það sem við vissum í gær
- Mikil ringulreið ríkir í Tyrklandi eftir að fréttir bárust af tilraun hersins til valdaráns.
- Herinn segist hafa náð völdum í landinu.
- Recep Tayyip Erdoğan, forseti Tyrklands, hvetur Tyrki til að mótmæla á götum úti og styðja þannig ríkisstjórnina.
- Erdoğan ávarpaði þjóðina á CNN í Tyrklandi í viðtali á FaceTime.
- Binali Yildirim, forsætisráðherra Tyrklands, segir að þjóðin eigi að vita að engar aðgerðir sem eru skaðlegar lýðræðinu verði leyfðar.
- Byssuskot heyrast í höfuðborginni Ankara og herþotur taka lágflug yfir borginni.
- Hermenn hafa lokað fyrir aðgengi að Ataturk-flugvöll.