Lokagreinarnar á heimsleikunum í CrossFit hófust rétt í þessu. Íslendingarnir eru í eldlínunni en Katrín Tanja Davíðsdóttir, sem hefur titil að verja, leiðir kvennaflokkinn fyrir síðustu tvær greinarnar. Horfðu á lokagreinarnar í beinni hér fyrir neðan.
Ragnheiður Sara Sigmundsdóttir er í þriðja sæti fyrir lokagreinarnar, Anní Mist Þórisdóttir í því tólfta og Þuríður Erla Helgadóttir í því sextánda.
Í karlaflokkinum er Björgvin Karl Guðmundsson í sjöunda sæti.